Algengar spurningar
Skýr svör um leigu, skil, afhendingu og verð. Svo þú þurfir ekki að giska. Skilaðu óhreinu. Þvottur innifalinn í verði.
Skil og þrif
Þarf ég að þvo áður en ég skila?
Nei. Skilaðu óhreinu. Þvottur innifalinn í leiguverði. Þú sleppur við uppþvottavélina. Settu hlutina aftur í kassa/rekka eins og þú fékkst þá.
Þarf ég að skola af matarleifum?
Gott er að henda af umfram mat og vökva svo ekkert leki í flutningi. En þú þarft ekki að þvo. Engin þrifagjöld fyrir venjulegt óhreint.
Hvað gerist ef eitthvað brotnar eða vantar?
Brot og skemmdir eru ekki innifalin í leiguverði. Þau eru rukkuð sér.
Hvað ef ég skila seint?
Skilaðu á umsömdum tíma. Ef skil dragast getur bæst við leigugjald fyrir auka daga. Hafðu samband strax ef áætlunin breytist.
Pöntun, pakkar og magn
Hvernig virka pakkarnir?
Pakkar eru tilbúnir fyrir gestafjölda: 20 gestir = 25.300 kr., 30 = 38.800 kr., 50 = 63.700 kr. Þeir innihalda stóra og litla diska, vatns- og hvítvínsglös, hníf, gaffal, skeið, servíettur, könnur og dúka. Oft ódýrara og einfaldara en stykkaverð. En þú getur einnig bætt við þig stökum vörum.
Pakki eða stakar vörur. Hvað er betra?
Margir byrja á pakka og bæta við (t.d. kampavínsglösum eða hitabaði).
Er lágmarkspöntun eða lágmarksmagn?
Sumar vörur hafa lágmarksmagn (t.d. diskar og glös). Það sést á vörulistanum og verðskránni.
Hvað ef mér vantar fleiri stykki eftir pöntun?
Hafðu samband eins fljótt og auðið er, við munum gera okkar besta að koma á móts við þínar þarfir.
Hvenær ætti ég að panta?
Því fyrr því betra. Við þurfum alltaf einhvern undirbúningstíma en við erum mjög létt á fæti og getum brugðist hratt við.
Afhending og notkun
Get ég fengið afhent eða þarf ég að sækja?
Hvort tveggja er hægt eftir samkomulagi. Við rukkum sérstakt sendingargjald fyrir sendinguna.
Er uppsetning á borðum innifalin?
Nei. Leigan er á búnaðinum sjálfum. Ef óskað er eftir aðstoð við að setja upp, er tekið sérstakt gjald fyrir það og óska þarf sérstaklega eftir því fyrirfram.
Má nota búnaðinn utandyra?
Að sjálfsögðu. En vörurnar eru alltaf á ábyrgð leigjanda.
Hversu lengi er leigutíminn?
Venjulega er leigan sólarhringsleiga og verð miðast við það. Ef óskað er um lengri leigutíma getum við gefið þér tilboð í það.
Verð, greiðsla og afbókanir
Er verðið á vefnum endanlegt?
Verð sem gefin eru upp á síðunni eru dagleiguverð, sé óskað eftir miklu magni eða í langan tíma getum við gefið tilboð.
Er VSK innifalið?
Öll verð eru án VSK.
Þarf að borga staðfestingargjald?
Já. Til þess að hægt sé að staðfesta bókun og taka frá vörurnar þarf að greiða leiguverðið fyrirfram.
Er hægt að afbóka?
Já. Það er hægt en afbókunargjald gæti átt við. Hafðu samband við okkur fyrir nánari upplýsingar.
Fannstu ekki svarið?
Sendu fyrirspurn með dagsetningu, gestafjölda og hvort þú viljir pakka eða stakar vörur. Við svörum eins fljótt og auðið er.
Tilbúin(n) að panta?
Veldu pakka eða vörur, sendu fyrirspurn. Við finnum leið sem hentar.
Senda fyrirspurn